Auglýsing

Innskráningar kubbur

Um mig;p

  • Nafn: Rebekka
  • Atvinna: Er í skóla..
  • Hjúskaparstaða: föstu ?
  • Um mig: Ég er ung hríseyjarmær sem er komin með leið á að vera það.. enn það lagast allt þegar sumarið kemur;D Aðaláhugamálin mín eru vinir mínir, góð tónlist og djamma;D

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Ég á 1 próf eftir ;D

06. maí 2008 klukkan 16:02

okeii eins og staðan er núna eru nákvæmlega 2 mánuðir síðan ég bloggaði... ýmislegt er búið að gerast síðan en það er ekki fræðilegtur möguleiki að ég nenni að telja það allt upp hérna ;P

Og í tilefni að því að ég eigi að vera að læra fyrir samræntpróf í stærðfræði ætla ég aðeins að segja frá því sem er búið að gerast hjá mér ;)

Jamm semsagt... vá veit ekkert hvar ég á að byrja.. uu ok ætla bara að segja frá aðalatriðunum úr seinustu tveimur vikum;) en hehe síðust tvær vikur hafa mikið farið í það að læra fyrir samrændu. Og hef ég þess vegna verið mjög einangruð hérna á Skerinu en ég leyfði mér aðeins að skreppa á rúntinn á laugardagskvöldið sem var mjög fínt ;D jáá ég, paula og alma fengum æðislega hugdettu um að skreppa í land kl.9 og koma heim aftur 11 ;p og við erum að tala um að þetta var áhveðið 10 min áður en ferjan fór ;‘) en við byrjuðum á að skjótast á óló en við nenntum ekki að hanga þar þannig við fórum á dalvík ;) hehe eins og þar væri eikkað skemmtilegra.. júú það var pínu meira líf þar ;)

Og við þakka paulu fyrir frábæra dj-takta ;p hihihi

Svo bara læralæralæra og í gær fór ég í samfélagsfræði próf sem gekk bara þokkalega svona þó ég hafi ekki verið að einbeita mér að læra... eftir prófið þá var þetta líka geggjaða veður komið og ég skellti mér á dalvík í sund með Kittu;) fékk meira að segja smá far á bakið ;D svo eftir sundið áhváðum við að taka bara nokkra hringi áður en við færum fram í sveit.. en neii  við rúntuðum ábyggilega í svona klukkutíma eða eikkað ;P hehe jáá gleymdum okkur aðeins (;  svo skruppum við í sveitina smá stund og svona ;) hálf átta fórum við aftur aðeins niður á dalvík með áhveðið verk í huga en það var ekkert úr því ;p hehe kannski bara betra...  var svo komin bara heim kl 10 og var með svo mikinn hausverk að ég fór bara að sofa;$

Jæja mætti í dönsku próf í morgun og má segja að mér hafi gengið það vel að ef ég ætti að skrifa danska orðabók þá yrðu 100 ný orð sem danir hafa aldrei séð ;p jáá einmitt það ....

Segjum þetta gott núna ;)

Rebekka is out

kannski, kannski ekki...

06. mars 2008 klukkan 14:48

Jáá ég veit eiginlega ekki alveg um hvað ég á að blogga ?

Ætla bara að byrja á þegar Kristján átti afmæli sem var 19. Febrúar :D kallinn bara orðinn 18 ára;) ég og kitta fórum á dalvík og við fórum í staðarhól og fengum afmælisköku:) en fyrir það var þorrablótið sem var mjög skemmtilegt þó að hljómsveitin hafi mátt vera betra..:$ en í heildina var þetta bara mjög skemmtilegt=D Svo hefur þetta bara gengið svona allt saman mjög svipað.. skóli í 5 daga,fer kannski e‘ð á ak, svo á dalvík um helgar,skólinn og svo framvegis..;) allt saman mjög skemmtilegt..:p svo er hún Paula mín eiginlega búin að sannfæra mig um að fara á árshátíðina í vma á morgun;) er eiginlega farið að hlakka pínu til;P  

Váá hvað á ég að segja ?? held að það sé bara ekki neitt svo ég segi þetta fínt í bili;D   

P.s. Kitta mundu svo að vera betri fyrirmynd í framtíðinni;p ekki viltu að börnin í dag verði eins og þú eftir nokkur ár =‘D ahahahahh;‘)

snilldsnilld !;D

07. febrúar 2008 klukkan 20:45
jááá sæll erum við að tala um að það sé bara þorrablót hérna í hrísey um helgina;D ! váá hvað það verður æðilegast!
Enn jáá svona aðeins það sem er að frétt er að núna á mánudaginn og þriðjudaginn fór allur skólinn í fjallið og við fengum skíða/brettakennslu:P ég valdi bretti og mér var farið að ganga alveg ágætlega þanngað til á þriðjudaginn þegar ég datt og meiddi mig í úlnliðinum þannig ég var að hætta mun fyrr enn ég vildi:(  enn var orðin alveg nokkuð góð þannig ég get kannski farið með bræðrum mínum í fjallið einhver tíman:P Enn svo á miðvikudaginn var frí útaf öskudeginum enn þá vaknaði ég bara um 10 leytið og var að drepast ennþá í hendinni minni.. fór samt út og horfði á litlu krakkana slá köttinn úr tunnunni og sonna;) fór síðan heim og við mamma áhváðum að fara inná ak og uppá slysó;/ þegar við vorum komin þá þurftum við að bíða í heila 2 klukkutíma!!:o váá ef það var ekki farið að styttast í að ég myndi missa þolinmæðina þá veit ég ekki hvað! :O svo fór ég inn og þurfti að bíða meira svo kom læknirninn og skoðaði hendina og sagði að ég þyrfti að fara í röngenmyndatöku (skrifað svona??) og ég bara neii ætla ekki að vera brotin:S svo kom bara í ljós að ég er tognuð og ekkert meira.. fannst samt læknirinn ekkert mjög sannfærandi þar sem hann sá ekkert brot enn ætlaði að biðja einhverja að líta á myndirnar betur á morgun sem sagt í dag;S enn það er enginn búinn að hringja þannig ég er nokkuð save núna, þetta er líka mikið að lagast núna;)
Í dag var svo bara skóli og svo þegar ég kom heim horfði ég á notting hill sem er án efa sú daprasta mynd sem ég hef sé! enn ég á að skrifa um myndina fyrir ensku á morgun..
Þanngað til næst með tilhlökkun til þorrablótsins;D 
Rebekka 

Skoppandi kartöflur:P

29. janúar 2008 klukkan 18:41
Blablabla.. held að blogg sé ekki málið núna..(;
Enn ætla barað koma með smá blogg á þetta;D

Jæja það var ekkert það mikið gert um jólin enn samt svona;P áramótin voru bara best ! byrjuðum á að borða hjá hildi frænku og svo var bara hitt stelpurnar og við fórum að taka okkur aðeins til fyrir áramótaballið;P;D svo var bara skokkað á ball um hálf 2;) Dönsuðum alveg þokkalega mikið og sonna;P
þakka fyrir æðislegt kvöld stelpur;**
svo næsta sem ég man að hún Alma mín varð 16.ára 16.janúar;P Til hamingju með það stelpa;*;P
Hún bauð okkur í svona smá matarboð sem var æðislegt;D enn þar vorum við stelpurnar nema hún Klara komst ekki:(
Svo var minnir mig bara venjulegir dagar ekkert að gera og eikkað voða rólegt.. við krakkarnir erum bara búin að vera dugleg að hittast á kvöldin og horfa á tv og sonna;P
Núna á laugardaginn var svo hið langþráða þorrablót í svarfaðardal sem var bara bestast í heimi sko ! Þar var líka dansa slatta við ýmsa aðila enn sumt endaði ekki nógu vel fyrir suma enn það er allt gleymt og grafið ;)
Vil líka þakka öllum fyrir frábært kvöld;D;**
Enn svo í núna í þessari viku er bara búið að vera rólegt.. enn stefnan er tekin á ak á morgun og gera eikkað skemmtilegt með Paulu minni og Kittu;* Helgin er ekki komin með plan svoo... þanngað til næst;P

Rebekka;*

Jól í bæ;*

18. desember 2007 klukkan 15:13

Jæja er fólk nokkuð farið að halda að ég hafi látist bara sísvona ..;)Ég man nú ekki einu sinni hvað er búið að gerast hjá mér hvað þá eftir einhverju dagsetningum(;  Enn ætla þá bara að kom með eitt stutt punkta blogg;p

·         Mikið kúr heima hjá Ölmu;p  Horfðum á nokkrar myndir, OC og sonna;) Það er samt frekar langt síðan.. verðum að fara að endurtaka það;)

·         Helgarnar frekar undarlegar.. alltaf að skjótast aðeins.. fór t.d. einu sinni í sveitina og við vorum að reka kvígur í snjónum;p frekar erfitt sonna enn ánægð þegar þetta var búið;)

·         Mikið á rúntinum með Gesti og Stebba;)  Alltaf fjör hjá okkur;D

·         Svo svona aðeins um mig;) Ég er t.d búin að láta að lita hárið mitt dökkt;P Fólk var samt að taka misjafnlega vel í það.. skil það ekki alveg:o  Ég er komin með svona smá vinnu við að skúra 1 -2 í viku á dalvík;) geðveikt;D   Komin langt með að kaupa allar jólagjafir á bara eftir að kaupa 2 -3 í viðbót og er að verða búin að skrifa öll jólakortin mín;P

Ég er líka með geggjaðar fréttir:P Á morgun er ég komin í jólafrí;D Ætla að vera duglega að hjálpa mömmu að klára allt fyrir jólin svo eftir jól ætla ég bara að chilla heima, í sveitinni eða bara einhver staðar annarsstaðar.. hafa það næs;)(: Svo byrjar blessaði skólinn aftur 4. Jan..  ekkert sérlega spennt fyrir því;/  Enn ætla bara að enda þetta hérna og vil óska öllum Gleðilegra jóla og vonandi hafa allir það frábært á nýju ári;)

 

Rebekka;*

Jáá Sæll eigum við að ræða það e'ð eða???

07. nóvember 2007 klukkan 08:24

Halló:o Þið getið ekki ýmindað ykkur hvað ég lenti í skelfilegum hluti í gær! Ég var búin að skrifa þvílíka bloggið og svo þegar ég ætlaði að setja það inn þá bara púff og allt hvarf!! Vá hvað mig langaði til að henda tölvunni í gólfið:o Þetta var ægilegt! Enn ég reyni henda einhverju inn núna;)

Enn allavega á mánudaginn (í síðustu viku) var bara skóli ekkert voðalega gaman eins og venjulega.. Svo þegar ég ætlaði að fara að horfa á sjónvarpið var dregin út í vonskuveður(minnir það;/)af Ásgeiri og Pascali enn við fórum heim til ölmu að horfa á dumb and dumberer;p snilldar mynd það;) kúrðum uppí sófa alveg til 23 eða eikkað:p Þriðjudaginn var mér skipuð að byrja að klæða mig þannig ég bara okeii klæddi mig svo þegar  hin komu þá bara; þú verður að klæða þig betur..það er brjálað veður úti;/ svo röltum við eikkað og eftir smá stund og tilraun til að nefbrjóta ásgeir þá heimtuðum við að fara aftur heim til ölmu að klára að horfa á dumb and dumberer;D horfðum á hana og byrjuðum á step up sem er líka snilldar mynd;)  Miðvikudaginn fórum við á ak og ég kláraði þæfða trefilinn minn:D geggjað töff;)Svo bara fórum ég og alma í bónus og svo kom kitta mín og skutlaði mér niðrí bæ.. það var svo kalt;/ Svo fór ég bara í ljós og labbaði til guðnýjar.. hélt ég myndi deyja á leiðinni;/ Svo kom Gestur og skutlaði mér í ferjuna;)  Á fimmtudaginn var venjulegasti dagurinn í síðustu viku minnir mig ég er samt með eikkað gullfiska minna þessa dagann eða hef égalltaf verið þannig??;O

Föstudaginn fórum ég, mamma og embla í bæinn kl.1 að versla minnir mig;p svo þegar við komum heim bakaði ég pizzu enn á meðan þær vorum að eldast fékk ég þá löngun til að fara á dalvík og gera eikkað... held ég hafi verið farin að sakna allra strax;/ Þannig eftir dálitla vangaveltur fór ég í ferjuna kl.9 og kitta og danni sóttu mig;) takk fyrir það;** Það var bara rúntað heilmikið og við gerðum ýmsa skandali;) neinei segji bara svona ;P  Laugardaginn var verið að slátrað í sveitinni og ég var ótrúlega dulega að flá;) enda lagði ég mig á eftir... Svo dróg kitta mig á dalvík með sér og við keyrðu í MARGA hringi þar eins og er svo vinsælt;p hehe alltaf eikkað skrautlegt í kringum okkur;) Sunnudeginum var tekið rólega.. ég og kitta fórum í búðina og keyptum okkur jarðaber;) það fer bara að verða hefð á sunnudögum;p  og svo svona í leiðinni þá tókum við smá rúnt í sveitinni og gleymdum okkur alveg í að kjafta og vorum komnar miklu lengra enn við ætluðum;p Kristján, embla og mamma komu síðan og við fórum í steindyr og skoðuðum kettlingana þar.. algjörar dúllur ætluðum að velja einn enn það endaði þannig að hver vildi fá einn kettling þannig við verðum að fara aftur og klára valið:‘D:‘D Síðan rendum við inná ak og á flugvöllinn enn það varð svo mikil seinkunn að það þurfti bara að færa flugið hennar emblu þanngað til í gær.. á meðan við höfðum ekkert að gera fórum ég og kristján í ljós.. heví næs í kuldanum;) Í gær fór ég bara í skólann og þetta var bara svona eins og venjulegur dagur enn síðan fórum við í ferjuna kl.11 og fórum inná ak á greifann og borðuðum pizzu og váá ég held ég hafi aldrei verið svona södd áður! Síðan rendum við á rútunni hennar Hjördísar uppí vma enn við vorum að fara í svona skólakynningu;) Þar hitti ég auðvitað Kittu og Paulu;p  Það verður samt svo gaman þegar ég fer í þennan skóla;D er alveg búin að áhveða mig að ég ætla að byrja þarna svo kannski geri ég eitthvað annað... Finnst bara æðislegt að labba um skólann og fylgjast með hvernig allt er þarna og bara allt lítur svo vel út ;)   Núna í dag var ég bara í skólanum og þegar ég kom heim var ég frekar þreytt og lagði mig aðeins og svo kom mamma heim allt í einu og spurði hvort við værum ekki að fara kl.5 og ég bara whaat? Vissi ekkert hvað var í gangi... þannig núna er ég bara á dalvík og ég ætla kannski að hitta kittu aðeins eftir smástund(:

Rebekka kveður

p.s. vissir þú að ef þú hefur lesið allt bloggið þá lastu 732 orð;p

22. október 2007 klukkan 20:03

Jæja sit hérna og er að horfa á ölmu baka pizzu sem ég ætla síðan að borða á eftirSvalur  hún vill samt að ég hjálpi henni að skera áleggið.. ætli maður geri það ekki..;) jæja þá er maður búinn að skera áleggið;P  Enn vikan sem leið var bara sonna þokkaleg.. bara skóli og eikkkað rugl.. fór síðan í sveitina á föstudaginn og sonna:D Ég og kitta vorum bara rólegar á föstudagskvöldið og gerðum ekkert. horfðum bara á mynd og eikkað í tölvunni.. Á laugardaginnvar ég sko ótrúlega dugleg;D tók niður eitt stykki rafmagnsgirðing og skoðaði kettlingana á steindyrum um leið og við sóttum hakkavél þanngað.. þeir voru svo litlir og sædir.. þessir minnstu pössuðu bara oní svona venjulegan kaffibolla algjört æði.. litla fjölskyldan í hrísey ætla að fá sér einn eftir ca. 5  eða 6 vikur.. afþví ég segji litla fjölskyldan er af því ég og mamma búum bara einar á virkum dögum enn svo kemur Kristján heim um helgar..;)

já enn laugardagskvöldið var nú ekkert sérstaklega róleg;)  Gestur og Helgi náðu í okkur um hálf 10 leitið og við fórum í bæinn.. það var mikið stuð í bænum og geggjað gaman:D fórum úr bænum um 2 leitið..:P Kitta var bara fyndin þegar við vorum að "fara" inn;'D;'D haha.. "gátu þið ekki beðið með þetta" hahaha.. ;'D Sunnudagurinn var bara rólegur,..fór heim með 7 ferju heim..er ekki búin að gera neitt spennandi í dag.. nema náttúrulega að baka pizzu með ölmu..;p hefði samt ekki geta verið óheppnari í leikfimistímanum í  dag.. Byrjaði á því að Ásgeir sparkaði í puttana á mér að ónefndri ástæði..Óákveðinn er samt ennþá að drepast í einum putta held ég hafi tognað í dag..;/ svo var ég alltaf að meiða mig eikkað í puttunum.. skrítið..:o
Held að ég nenni ekki að blogga meira..;/
Rebekka kveður;**

Veit ekki hvað skal segja..;D

15. október 2007 klukkan 16:52

Hmm langt síðan ég bloggaði;p neii.. enn ætla bara að fara HRATT yfir restina af sumrinu og haustið;) Geri bara punkta blogg;P

- Fór ábyggilega nokkru sinnum á króksfjarðarnes í sumar.. æðislega gaman það;d

- Svo var einhver tíman var Hríseyjarhátíðin.. komst inná 16. ára ball það var algjör snilld;D;D 

 -Svo bara það sem ég man eftir var Vezló og Fiskidagurinn..;) Vesló var nú fyrir vestan föstudaginn og  laugardaginn;/ enn kom síðan á sunnudeginum og fór á KA-ballið með Paulu minni og Kittu;P;P Það var bara  gaman;D

- Fiskidagurinn mjög skemmtilegur..  eftir kvöldið var mikið talað um að ég hafi verið eikkað blind..;/ skil það ekki alveg;o hahaha;D

- Við fjölskyldan skelltum okkur suður áður enn skólinn byrjaði og kjella keypti sér á eitt stykki fartölvu:D

- Svo byrjaði skólinn getur hreinlega ekki verið spennandi að segja frá því;(

- Svo í sept  voru göngur og ég fór í tvennar göngur;) ótrúlega stolt að sjálfri mér;P Svo á sunnudaginn fórum við ríðandi á tungurétt og vorum ekkert að flýta okkur.. :lol: Datt reyndar af baki þegar við vorum að koma upp úr ánni enn það var allt í lagi meiddi mig ekkert;) gat allvega dansað um kvöldið;D Já fór á gangnaballið með öllum í sveitinni;D algjör snilld;P

- Fimmtudaginn eftir göngur fór ég svo til Kanada með vinnunni og var í viku;D Mesta snilld sumarsins;P Æðislegt veður og allt..;) Verslaði kannski dálítið mikið fyrir sonna 60þús!  hehe verslaði bara fyrir árið og kannksi eikkað næsta ár;D

- Strax eftir kanadaferðin var farið í sveitina og á rúntinn með Kittu minni því hún fékk nú bílprófið þegar ég var að fara til kanada svo hún skuldaði mér rúnt;) fórum t.d. tvær ferðir inná ak. og ýmislegt;p Algjör snilld;D Lentum líka í svolitlu sem við hefðu alveg vilja sleppa við enn þetta fylgir því að vera bílstjóri og manneskja með bílstjóranum;/

- Ehh veit ekki alveg hvernig ég á að segja frá lok sept til tímans í dag.. enn þetta hefur verið mjög skemmtilegur tími og á eftir að verða skemmtilegri;P´

- Núna um helgina fórum við fjölskyldan suður því mamma átti 50 afmæli á laugardaginn og það var smá veisla og flest allt skyldfólk okkar að sunnan kom og kíkti í kaffi.. svo þegar mér var farið að leiðast eikkað pínu hringdi Kitta og gerði það versta sem hún hefur gert mér!! er varla búin að fyrirgef þeim sem tóku þátt í þessu... á eftir að ræða það við þau.. 

Held að það helsta sé komið sem hefur drifið á daga mín undanfarið.. (whhaaat!) 
Rebekka kveður;** 



Lífið er yndislegt;D

03. júlí 2007 klukkan 19:08
Jæja bara að láta vita að ég sé Glottandi Hehe Danmerkur ferðin var mjög mikil snilld í einu orði;P Það var yndilsegt veður og allt bara:D Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja þannig ég ætla bara sleppa því það segja eikkað frá því, því það mundi taka margar blaðsíðurTala af sér Enn í svona stuttu máli fvorum við í sumarbústað í marielyst og við fórum í keilu, go-kart og sund sem sem voru þarna rétt hjá svo keyrðum við niðrá láland og fórum í safari-garð sem var mjög gaman í ca. 30° hita! Eftir það fórum við í lalandia (held að það sé skrifað svona) sem er svona inni sundlauga-garður;p Það var líka geðveikt gaman. Á föstudeginumkeyrðum við í kaupmannahöfn og við eyddum eiginlega öllum deginum í að versla á strikinu;p Þegar við vorum búinar að fara í slatta margar enduðum við í HM og misstum okkur alveg;D Ég var gjörsamlega að deyja úr hita því það var svona 30 stiga hiti úti og að versla er held ég bara það versta sem maður gerir í svona miklum hita.. Á laugardeginum fórum við að sjá vakta-skiptin við konungshöllina sem ég man ekki alveg hvað heitir.. Allavega er þetta mjög flott hvernig þetta er enn svolítið spes;) Svo fórum við í tívolíið sem var bara snilld;p Ég fór held ég í öllu þessi "aðal"tæki sem eru þar.. fór meira að segja í stórarússíbanan og freefall og róluna:D Á sunnudaginn fórum við í bakken sem var mjög gaman og það var alveg jafn heitt og daginn áður.. ég var nú ekki jafn dugleg að fara í tækin þar enn gerði bara ýmisegt annað..;) Svo borðuðum við á Hard Rock Cafe;P Það var mjög góður matur þar  og ég var eina sem kláraði matinn minn alveg:P allavega af þessum sem fengu sér risasamloku;;P Svo var bara farið uppá hótel af pakka.. Ég svaf eiginlega ekkert um nóttina en við áttum flug kl.6 á íslenskum tíma.. Mér minnir að ég hafi sofið í svona 1 og hálfan klukkutíma fyrir flugið.. Svo svaf ég eiginlega ekkert í flugvélinni þvímér var alltaf svo illt í maganum .. svo þurftum við að sveima yfir hálendinu í ábyggilega 45 mín því flugvélin gat ekki lent á akureyri vegna þoku enná endanum gat hún lent því ég hefði ekki nent að lenta á Egilsstöðum..! Svo man ég eiginlega ekkert eftir restinni af deginum enn svo byrjaði ég bara að vinna og átti víst afmæli þarna einhver tíman enn það fór víst alveg fram hjá mér einhvern veginn.. Svo á föstudaginn fór ég  í ferð vestur í króksfjarðarnes þar sem á að fara að leggja kræklingalínur;) Þessi ferð var bara skemmtileg í alla staði;D Var þana í 6 daga enn ég er búin að fara í aðra svona ferð enn hún var bara um síðustu helgi.. Það er bara yndislegt að vera á þessum stað og vill bara helst ekki fara þegar ég á að fara aftur heim..;P/ Ég held að þetta eigi eftir að vera mjög skemmtilegt og mikil upplifun á þessu sumri;D;*

- Rebekka

Ótrúlegt enn satt!!

03. júní 2007 klukkan 22:22
Hæ hó og jibbí jejj og jibbí jejj  það er að komin 4. júní:D:D
Jæja núna er skólinn löngu búinn og maður er bara að fara að spóka sig í Danmörku;p Já ferðinni er heitið í ferjuna kl.7 í fyrramáli svo er bara brunað beina leið inná Akureyri og á flugvöllinn;) Svo er bara flugtak á slaginu níu;D
Já það verður sko skemmt sér vel fyrst í marielyst og svo köbenhagen;p
Bara svo allir viti þá er bara hægt að ná í mig en það verður að vera mjög nauðsynlegt aðþví sms-ið kostar 36 kr.! Áætlað er að koma heim og lenda á Akureyrarflugvelli kl. 8:15 á mánudagsmorgni eftir viku;)
 Enn það sem hefur verið það helsta hjá mér núna undanfarna daga er að skólinn er búinn og ég er mjöög ánægð með það:D  Laugardaginn eftir skólaferðalegið var frumsýnt Hernám í Hrísey enn það er frumsamið leikrit sem þau í leikfélaginu sömdu. Ég fór á þá sýningu sem var bara mjög skemmtilega og vel heppnuð eftir hana fórum ég og Paula heim til mín og við horfðum á einhverja mynd sem endaði sorglega.. Sunnudagurinn fór í það að plana kvöldið enn ég, Kristján og Paula fórum í bíó kl.6 og við sáum Pirates of Caribbean; At World's end;) það er reyndar góð mynd enn hún er svona svipað góð og önnur myndin, dálítið flókin og ruglingsleg en samt góð;);) Eftir bíóið ætluðum við bara að rúnta eikkað í bænum og eikkað enn þá var hringt í Kristján og hann var beðinn að skutla Þorra og Heiðari uppá golfvöll.. þá fórum við bara og sóttum þá og skutluðum þeim uppá golfvöll enn þetta var mjög svo skrautleg ferð..:o Kl.10 skutluðum við paulu heim til sín og kristján fór með mig í sveitina;) kemur á óvart.. Svo var ég bara í sveitinni fram á þriðjudag enn þá fór ég heim og fór í skólann því kennararnir voru búinir að undirbúa eikkað.. við grilluðum pylsur og horfðum á árshátíðina.. hehh frekar skreutleg árshátíð enn allt ílagi;)  Skólaslitin voru síðan á miðvikudaginn þá borðuðum við aftur grillaðar pylsur í skólanum enn ég þurfti að flýta mér heim því ég vara að fara í land með 7 ferju og fór í sveitina.. nei kemur á óvart;);) Það var alveg geggjað veður meðan ég var í sveitinniSvalur Svo í gær settum við út beljurnar enn þær voru nú frekar rólegar að mínu mati enn  maður sá nú samt svona nokkur stökk;);) Rúmlega fjögur fórm ég og Kristín niðrá Dalvík og afi skutlaði mér á móti mömmu því hún var dálítið sein að sækja mig.. Við fórum bara heim og borðuðum grillað kjöt og kl.10 fór ég til Siggu og fór að passa fyrir hana.. Í dag er ég bara aðallega búin að vera að pakka niður og reyna að koma einhverju skipulagi á töskuna mína;) Enn læt þetta duga núna kem kannski með einhverja ferðasögu þegar ég kem heim;)

-Rebekka